Safnasýning

Munir úr eigu einstaklinga, úr Ásbúðarsafni og Byggðasafni Hafnarfjarðar

Um var að ræða sýningu á söfnum í eigu einstaklinga, ásamt hlutum úr Ásbúðarsafni og Byggðasafni Hafnarfjarðar, sem stóð að sýningunni í samstarfi við Hafnarborg.

Hvað rekur fjölda fólks til að halda hlutum til haga – henda helst aldrei neinu? Trúlega finnast ótalmörg svör við þessari spurningu. Sumir hlutir hafa sögulegt gildi, aðrir ganga í erfðir og mynda smám saman vísi að safni. Vissir gripir höfða til fegurðarskyns okkar og öðru söfnum við einfaldlega að okkur af vana sem erfitt er að leggja af.

Á þessari sýningu gafst kostur á að kynna sér brot af því sem fjöldi fólks, vítt um land, lætur eftir sér að safna í tómstundum sínum í dag en gæti með tímanum öðlast sögulegt gildi í menningu okkar.